Eldur

Síðast uppfært: 5. október 2026

Persónuverndarstefna

Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvernig við (hér eftir „við“, „okkur“ eða „Eldur“) söfnum, notum, miðlum og verndum persónuupplýsingar þegar þú notar Eldur-smáforritið (hér eftir „appið“) og vefsíðuna eldurapp.is (saman nefnt „þjónustan“).

Við förum eftir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR / reglugerð (ESB) 2016/679). Með því að nota þjónustuna staðfestir þú að þú hafir lesið og skilið þessa stefnu.

1. Ábyrgðaraðili og tengiliður

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Hinrik Snær Hjörleifsson. Hægt er að hafa samband við okkur vegna persónuverndarmála á hallo@eldurapp.is.

Tengiliður vegna fyrirspurna frá yfirvöldum samkvæmt lögum um stafræna þjónustu (Digital Services Act, reglugerð (ESB) 2022/2065) er hallo@eldurapp.is.

2. Hvaða gögnum við söfnum

Reikningsupplýsingar

  • Nafn (birtingarnafn).
  • Netfang.
  • Lykilorð (geymt í tættu (hashed) formi með bcrypt. Við sjáum lykilorðið sjálft aldrei).
  • Auðkenningarupplýsingar frá Apple eða Google ef þú skráir þig inn með „Sign in with Apple“ eða Google (auðkenni notanda hjá þjónustuveitanda, nafn og netfang sem þú heimilar að deila. Netfangið getur verið áframsendingarnetfang frá Apple).

Upplýsingar á prófíl

  • Prófílmynd (ef þú setur hana inn).
  • Lýsing/æviágrip (ef þú setur það inn).
  • Hlekkir sem þú bætir við prófílinn þinn (allt að fjórir hlekkir).

Efni sem þú býrð til

  • Uppskriftir (titill, lýsing, hráefni, skref, eldunartími, skammtar, næringargildi og myndir).
  • Athugasemdir, endurgjöf á uppskriftir og ábendingar sem þú skilur eftir.
  • Minnispunktar sem þú skrifar hjá þér við uppskriftir, bæði þínar eigin og annarra. Enginn sér þá nema þú, og þeim er eytt ef uppskriftinni er eytt.
  • Smekksmerki (e. taste tags) og persónulegar stillingar sem þú velur.

Notkunar- og atferlisgögn

  • Hvaða uppskriftir þú skoðar, vistar, byrjar að elda og lýkur við að elda. Þetta er notað til að raða efni í streymi (e. feed) og bæta uppskriftatillögur.
  • Hvaða notendum þú fylgir, hvaða notendur fylgja þér og hvaða notendum þú hefur lokað á (blokkað).
  • Kvartanir eða ábendingar (e. reports) sem þú sendir vegna efnis eða annarra notenda.
  • Leitarorð sem þú slærð inn í appinu og hvort leitin skilaði niðurstöðum. Þetta er notað til að bæta leitina. Þessar upplýsingar eru ekki tengdar reikningnum þínum og þeim er eytt eftir 30 daga.

Tæknilegar upplýsingar

  • Auðkenni tækisins fyrir tilkynningar (push token) ef þú leyfir tilkynningar, ásamt tungumálinu sem appið er stillt á, svo tilkynningar birtist á réttu tungumáli. Auðkennið er bundið við appið á tækinu þínu, ekki tækið sjálft, og því er eytt þegar þú skráir þig út eða eyðir reikningnum. Því er einnig eytt sjálfkrafa ef Apple eða Google tilkynna okkur að tækið taki ekki lengur við tilkynningum. Ef þú slekkur á tilkynningum í stillingum símans hætta þær að berast, en auðkennið er áfram geymt þar til þú skráir þig út. Í stillingum appsins geturðu valið hvaða tilkynningar þú vilt fá.
  • Stýrikerfi og útgáfa appsins (t.d. þegar þú sendir okkur ábendingu úr appinu).
  • IP-tala og upplýsingar um vafra og tæki þegar þú notar vefinn (vegna veflota og öryggis).
  • Villu- og hrunskýrslur (sjá 7. kafla).

3. Tilgangur vinnslu og lagagrundvöllur

Við vinnum persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi:

  • Til að veita þér þjónustuna: Stofna og reka reikning, geyma uppskriftir og sýna þér streymi (nauðsynlegt til að efna samning, 6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR).
  • Til að birta opinberan prófíl og uppskriftir á vefnum: Sjá 4. kafla (nauðsynlegt til að efna samning og vegna lögmætra hagsmuna).
  • Til að sérsníða upplifun þína: Raða efni í streymi, sýna „vinsælt núna“ og gera uppskriftatillögur út frá notkunargögnum (lögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður GDPR — að veita gagnlega og viðeigandi þjónustu).
  • Til að bæta leitarvirkni: Út frá því hvaða leitarorð skila engum niðurstöðum (lögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður GDPR — að gera þjónustuna gagnlegri).
  • Til að tryggja öryggi og efnisstjórnun: Koma í veg fyrir misnotkun og sinna efnisstjórnun og meðhöndlun tilkynninga (lögmætir hagsmunir og lagaskylda, meðal annars samkvæmt DSA).
  • Til að kynna þjónustuna: Með opinberu efni á borð við uppskriftir, myndir og birtingarnöfn höfunda (lögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður GDPR — sjá 4. kafla).
  • Til að eiga í samskiptum við þig: Vegna þjónustunnar, t.d. til að senda þér kóða til að endurstilla lykilorð (nauðsynlegt til að efna samning).
  • Vegna valfrjálsra eiginleika: Sem krefjast sérstaks samþykkis (samþykki, 6. gr. 1. mgr. a-liður GDPR). Þú getur dregið slíkt samþykki til baka hvenær sem er.

4. Opinberir prófílar og uppskriftir á vefnum

Þegar þú stofnar reikning færðu opinberan prófíl á eldurapp.is sem birtist um leið og þú birtir fyrstu opinberu uppskriftina þína. Leitarvélar á borð við Google geta vísað á síðuna. Á síðunni birtast:

  • Birtingarnafnið þitt.
  • Prófílmynd (ef hún hefur verið sett inn).
  • Lýsing/æviágrip (ef það hefur verið sett inn).
  • Hlekkir sem þú hefur sett inn á prófílinn þinn.
  • Opinberar uppskriftir þínar með heitum, lýsingu, hráefnum, skrefum og myndum.

Stjórn á sýnileika: Þú stjórnar því hvaða uppskriftir eru opinberar. Hver uppskrift er annaðhvort opinber eða einkauppskrift. Þú getur breytt uppskrift úr opinberri í einkauppskrift hvenær sem er í appinu. Þá hverfur hún strax af eldurapp.is og síðan skilar villuskilaboðum (HTTP 404). Það getur þó tekið leitarvélar nokkrar vikur að fjarlægja síðuna úr leitarniðurstöðum sínum. Einkauppskriftir eru aldrei sýnilegar öðrum og birtast hvergi á vefnum. Ef þú ert ekki með neinar opinberar uppskriftir er prófíllinn þinn ekki birtur.

Kynningarefni: Við getum notað opinberar uppskriftir (texta, myndir og birtingarnafn þitt) til að kynna appið Eldur, t.d. í færslum á samfélagsmiðlum eða í skjámyndum úr appinu á síðum Apple App Store og Google Play. Þetta á aldrei við um einkauppskriftir. Lagagrundvöllurinn er lögmætir hagsmunir okkar af því að kynna þjónustuna. Þú getur hvenær sem er andmælt slíkri notkun með því að senda okkur tölvupóst og þá hættum við henni (sjá nánar 3. gr. notkunarskilmálanna).

Endurgjöf: Athugasemdir sem aðrir skilja eftir við uppskriftir þínar birtast þér án þess að nafn þess sem gaf endurgjöfina fylgi. Endurgjöfin er nafnlaus gagnvart höfundi uppskriftarinnar. Netfang þitt birtist aldrei opinberlega.

5. Uppskriftaskönnun með gervigreind

Eldur býður upp á að skanna uppskrift af mynd, t.d. handskrifaða eða prentaða uppskrift. Þegar þú notar þennan eiginleika er myndin send til Google Cloud Vision til að lesa textann og Google Gemini til að setja uppskriftina upp út frá textanum.

Myndin er aðeins unnin tímabundið í þessum tilgangi og er ekki geymd hjá okkur lengur en nauðsynlegt er til að skila þér drögum að uppskrift. Ef þú vistar uppskriftina er myndin varðveitt á sama hátt og aðrar uppskriftamyndir (sjá 10. kafla). Lagagrundvöllurinn er nauðsyn þess að efna samning og lögmætir hagsmunir.

6. Efnisstjórnun og sjálfvirk myndagreining

Til að halda þjónustunni öruggri getum við látið greina sjálfvirkt myndir sem hlaðið er upp (uppskriftamyndir og prófílmyndir) með Google Cloud Vision (SafeSearch) til að greina óviðeigandi efni.

Niðurstaða greiningarinnar er geymd með myndinni. Við getum yfirfarið merktar myndir handvirkt og fjarlægt þær ef þær brjóta gegn skilmálum. Lagagrundvöllurinn er lögmætir hagsmunir og lagaskylda samkvæmt DSA.

7. Villuskýrslur

Við notum Sentry til að safna villu- og hrunskýrslum úr appinu og bakenda kerfisins svo við getum greint og lagað galla. Slíkar skýrslur geta innihaldið auðkenni reiknings þíns og netfang ásamt tæknilegum upplýsingum um villuna. Gögnin eru hýst innan EES (Frankfurt) og þeim er eytt sjálfkrafa eftir 30 daga.

Við notum hvorki greiningar- né auglýsingahugbúnað frá þriðja aðila og fylgjumst ekki með þér þvert á önnur forrit eða vefsíður. Lagagrundvöllurinn er lögmætir hagsmunir.

8. Miðlun persónuupplýsinga til þriðju aðila (vinnsluaðilar)

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Við miðlum gögnum til eftirfarandi vinnsluaðila sem reka innviði fyrir okkur, á grundvelli vinnslusamninga:

  • Cloudinary: Hýsing og afhending mynda (uppskriftamyndir og prófílmyndir).
  • Google (Cloud Vision og Gemini): Textalestur og uppsetning uppskrifta við skönnun, og myndagreining vegna efnisstjórnunar (sjá 5. og 6. kafla).
  • Resend: Útsending þjónustupósts, t.d. kóða til að endurstilla lykilorð.
  • Cloudflare: Nafnaþjónusta fyrir eldurapp.is. Cloudflare sér um fyrirspurnir á lénið en hefur hvorki aðgang að vefumferðinni sjálfri né innihaldi tölvupósts.
  • Google Workspace: Tölvupóstþjónusta fyrir netföng á léninu. Tölvupóstur sem þú sendir okkur, t.d. þjónustupóstur, er geymdur hjá Google.
  • Expo: Tilkynningaþjónusta. Þegar appið skráir sig fyrir tilkynningum sækir það auðkenni í gegnum Expo, sem fær um leið auðkenni tækisins frá Apple eða Google. Expo sendir einnig tilkynningarnar sjálfar áfram til Apple og Google og fær þá innihald þeirra, t.d. nafn kokksins sem byrjaði að fylgja þér eða heiti uppskriftarinnar sem einhver vistaði. Athugasemdir sem einhver skilur eftir við uppskrift þína eru alltaf nafnlausar, einnig í tilkynningum. Expo sér líka um uppfærslur á appinu. Þegar appið er opnað athugar það hjá Expo hvort ný útgáfa sé til og sendir þá IP-tölu, tegund stýrikerfis, útgáfunúmer appsins og handahófskennt auðkenni uppsetningarinnar, en engar upplýsingar um reikninginn þinn.
  • Sentry: Villu- og hrunskýrslur (sjá 7. kafla).
  • Backblaze B2: Dulkóðuð öryggisafrit af gagnagrunninum (sjá 11. kafla).
  • Apple og Google: Auðkenning við innskráningu.

Einnig kann upplýsingum að vera miðlað til:

  • Almennings: Gögn sem þú hefur sjálf(ur) birt opinberlega (sjá 4. kafla).
  • Yfirvalda: Þegar okkur ber lagaleg skylda til þess.

9. Flutningur gagna út fyrir EES

Sumir vinnsluaðilar okkar, t.d. Cloudinary og Google, kunna að vinna gögn utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), meðal annars í Bandaríkjunum. Þegar gögn eru flutt út fyrir EES tryggjum við ætíð viðeigandi verndarráðstafanir, einkum með stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB (Standard Contractual Clauses) eða á öðrum lögmætum grundvelli samkvæmt GDPR.

10. Hvar gögnin eru geymd

Reikningsgögn og uppskriftir eru geymd í gagnagrunni þjónustunnar. Myndir eru geymdar hjá Cloudinary. Villuskýrslur eru hýstar innan EES (Frankfurt). Dulkóðuð öryggisafrit af gagnagrunninum eru geymd hjá Backblaze B2 innan EES. Aðrir vinnsluaðilar geyma gögn innan EES eða í löndum sem tryggja jafngilda vernd, í samræmi við þær ráðstafanir sem lýst er í 9. kafla.

11. Varðveisla gagna

Við varðveitum reikningsgögn þín á meðan reikningurinn þinn er virkur. Þegar þú eyðir reikningnum þínum á eftirfarandi við:

  • Persónuupplýsingum (nafni, netfangi, lýsingu og prófílmynd), uppskriftum þínum og minnispunktum er eytt.
  • Opinberar síður á eldurapp.is verða óaðgengilegar og skila HTTP 404 strax.
  • Ábendingar og kvartanir sem þú hefur sent geta varðveist á nafnlausu formi, án allrar tengingar við þig, vegna öryggis og efnisstjórnunar.
  • Afrit í afritunarkerfum og hjá vinnsluaðilum kunna að varðveitast í takmarkaðan tíma (allt að 30 daga) áður en þeim er endanlega eytt.
  • Leitarorð eru geymd í 30 daga og þeim er síðan eytt sjálfkrafa. Þau eru aldrei tengd reikningi og því hefur eyðing reiknings engin áhrif á þau.

12. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum og GDPR átt þú rétt á að:

  • Fá afrit af persónuupplýsingum þínum (aðgangsréttur).
  • Láta leiðrétta röng eða ófullnægjandi gögn.
  • Láta eyða gögnum þínum („rétturinn til að gleymast“). Þú getur eytt reikningnum þínum beint í appinu.
  • Andmæla vinnslu eða krefjast takmörkunar á henni.
  • Flytja gögn þín til annars aðila (réttur til gagnaflutnings).
  • Draga til baka samþykki hvenær sem er, þegar vinnsla byggir á samþykki.

Til að nýta þér þessi réttindi skaltu senda okkur tölvupóst á hallo@eldurapp.is. Við svörum innan þeirra tímamarka sem lög kveða á um. Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is).

13. Vefkökur og rakning

Eldur-vefurinn notar eins fáar vefkökur (e. cookies) og hægt er, aðallega vegna tæknilegrar virkni og veflota. Við notum hvorki markaðsvefkökur né rakningu þvert á síður án samþykkis þíns. Appið inniheldur engin greiningar- eða auglýsingakerfi.

14. Öryggi

Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar þínar, meðal annars með dulkóðun gagna í flutningi (HTTPS), tættum lykilorðum og takmörkuðum aðgangi. Engin þjónusta er þó fullkomlega örugg og því getum við ekki ábyrgst algert öryggi.

15. Börn

Eldur er ekki ætlað börnum yngri en 13 ára. Ef við komumst að því að við höfum óvart safnað gögnum um barn yngra en 13 ára, eyðum við þeim eins fljótt og auðið er.

16. Breytingar á stefnunni

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu eftir þörfum. Verulegar breytingar verða tilkynntar sérstaklega í appinu eða með tölvupósti. Dagsetning síðustu uppfærslu kemur fram efst á síðunni.